info(at)dalvikurbyggd.is
info(at)fjallabyggd.is
Gisting í tveimur sumarhúsum í friðsælu umhverfi skammt frá bænum Syðri-Haga á Árskógsströnd. Útsýni til hafs og miðnætursól. Tignarleg fjöll og hlýlegir dalir, frábærar gönguleiðir við allra hæfi. Stangveiði frá ströndinni án endurgjalds og síðsumars er gestum frjálst að tína ber í landi jarðarinnar. Frábær skíðasvæði í nágrenninu.
Sumarhúsið Götusel er 37 fm. ásamt stórri verönd. Í húsinu er svefnaðstaða fyrir 4 í tveimur svefnherbergjum, auk þess er svefnsófi fyrir 2 í stofu og dýnur á svefnlofti. Í bústaðnum er ísskápur, eldavél, örbylgjuofn og sjónvarp. Borðbúnaður er fyrir 8 manns. Gæludýr leyfð.
Sumarhúsið Sólsetur er 25 fm, byggt 2016 - 2017. Í húsinu er eitt svefnherbergi með svefnaðstöðu fyrir tvo. (2 rúm *90 cm, hægt er að setja rúmin saman), auk þess er svefnsófi fyrir tvo í stofu. Í bústaðnum er ísskápur með litlu frystihólf, eldavél, ofn með örbylgjuofni og sjónvarp. Borðbúnaður er fyrir fjóra.
Í báðum húsum er frí nettenging og heitur pottur og gasgrill á verönd.
Frekari upplýsingar og bókanir
Sími: +354 466 1981 & +354 866 7968 Hafliði & +354 8419048 Linda

Copyright © 2014 Dalvíkur- og Fjallabyggð. Allur réttur áskilinn | Veftré | Hafa samband